Mikið um að vera í hestamennskunni næstu daga!
Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási sigruðu keppni í fimmgangi í Meistaradeild KS núna er framundan keppni í fjórgangi í beinni á vef Eiðfaxa
Framundan í næstu viku eru hinir ýmsu viðburðir víða um landið. Blaðamaður Eiðfaxa lagðist í rannsóknarvinnu og hér fyrir neðan má sjá dagskrá næstu vikuna, en ákveðið var að leyfa sunnudeginum 8.mars að vera með í upptalningunni þar sem hann er viðburðarríkur.
Í dag átti að fara fram í reiðhöllinni á Flúðum mótið Æska Suðurlands en því hefur verið frestað um óákveðin tíma vegna veðurs.
Meistaradeild KS er á dagskránni á miðvikudagskvöld, að sjálfsögðu í beinni útsendingu á vef Eiðfaxa. Nú verður keppt í Léttishöllinni á Akureyri og er verkefni kvöldsins fjórgangur.
Fimmtudagskvöldið 5.mars er keppt í slaktaumatölti og Flugskeiði í Equsanadeildinni. Þá ætla Dalamenn að gera sér glaðan dag því keppt verður í Nesoddahöllinni í Búðardal.
Föstudagskvöldið 6.mars er Meistaradeild Ungmenna í Fákaseli og er nú keppt í gæðingafimi. Snæfellingsmótaröðin er þá haldinn sama kvöld í reiðhöllinni á Söðulsholti.
Laugardagurinn 7.mars er keppt í Grímutölti á Álftanesi og þá eru fjölmörg hestamannafélög með vetrarleika.
Sunnudaginn 8.mars er svo keppt í gæðingafimi í Meistaradeildinni í Samskipahöllinni. Á sama tíma er keppt í Meistaradeild Líflands og æskunnar í TM höllinni í Víðidal.
1.mars
Æska Suðurlands – Reiðhöllin Flúðum – Frestað
3.mars
Suðurlandsdeildin – fimmgangur – Rangárhöllin
4.mars
Meistaradeild KS – Fjórgangur – Léttishöllin
5.mars
Equsanadeildin – slaktaumatölt og flugskeið – Samskipahöllin
Tölt í Nesoddahöllinni Búðardal
6.mars
Meistaradeild Ungmenna – Gæðingafimi – Fákasel
Snæfellingsmótaröðin – Söðulsholti
7.mars
Grímutölt – Álftanesi
Gæðingaleikar Sleipnis og GDLH
2.Vetrarleikar Sörla
2.Vetrarleikar Harðar
2.Vetrarleika Mána
8.mars
Meistaradeildin í hestaíþróttum – Gæðingafimi – Samskipahöllinni
Meistaradeild Líflands og æskunnar – T2 og flugskeið – TM höllin Fáki
Folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps – Reiðhöll Sleipnis
Við vinnslu fréttarinnar var stuðst við Mótaskrá LH. Við biðjumst velvirðingar ef viðburði vantar í upptalninguna.
Endilega sendið okkur póst á [email protected] ef þið viljið koma upplýsingum um mótahald eða aðra viðburði á framfæri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH