Mikil gæði á úrtökumóti Hornfirðings
Fulltrúar Hornfirðings á LM2024 í Unglingaflokki. Elín Ósk Óskarsdóttir og Ísafold frá Kirkjubæ og Ída Mekkín Hlynsdóttir og Marín frá Lækjarbrekku.
Á laugardeginum var hið hefðbundna félagsmót haldið og gilti það sem fyrri úrtaka.
Á sunnudeginum var svo seinni úrtaka.

Dagskráin hófst á hinum stórskemmtilega pollaflokki, en þar voru fjórir hressir krakkar: Nökkvi Þór á Ými frá Blesastöðum 1A, Unnsteinn Heiðar á Marín frá Lækjarbrekku 2, Ásthildur Sigrún á Agnesi frá Gunnarsstöðum og Skúli Baldur á Tinna frá Fornustekkum.
Veitt voru tvenn ný verðlaun, farandbikarar í bæði unghrossaflokki og 10m skeiði til minninga um þá Einar Jóhann og Ingólf Vopna, eða Jóa á Meðalfelli og Vopna eins og flestir þekktu þá.
Efnilegasti knapi mótsins var valin Elín Ósk Óskarsdóttir og nafnbótina Gæðingur mótsins hlaut Dís frá Bjarnanesi
Hér koma svo öll úrslit mótsins:
Barnaflokkur
1. Eyrún Stína Guðmundsóttir og Funi frá Mið-Fossum 7.75
2. Bjarni Magnússon og Litla-Jörp frá Fornustekkum 6.65
A-flokkur
1. Þórmundur frá Lækjarbrekku 2 og Hlynur Guðmundsson 8.76
2. Glæsir frá Lækjarbrekku 2 og Friðrik Reynisson 8.62
3. Ýmir frá Blesastöðum 1A og Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir 8.41
4. Mórall frá Hlíðarbergi og Snæbjörg Guðmundsdóttir 8.32
5. Magni frá Lækjarbrekku 2 og Elín Ósk Óskarsdóttir 7.38
Unglingaflokkur
1. Elín Ósk Óskarsdóttir og Ísafold frá Kirkjubæ 8.96
2. Ída Mekkín Hlynsdóttir og Marín frá Lækjarbrekku 2 8.78
B-flokkur ungmenna
1. Eyvör Stella Guðmundsdóttir og Gná frá Höfn 7.77

Dís frá Bjarnanesi sigraði keppni í B-flokki gæðinga með einkunnina 8,84 knapi er Snæbjörg Guðmundsdóttir
B-flokkur
1. Dís frá Bjarnanesi og Snæbjörg Guðmundsdóttir 8.84
2. Klerkur frá Bjarnanesi og Friðrik Reynisson 8.72
3. Árdís frá Bjarnanes og Hlynur Guðmundsson 8.63
4. Úlfrún frá Hnappavöllum 5 og Katrín Líf Sigurðardóttir 8.45
5. Kapall frá Hlíðarbergi og Gunnar Ásgeirsson 8.19

Gunnar Ásgeirsson og Skandall frá Hlíðarbergi sigurvegarar í 100 metra flugskeiði á 8.42 sek við hlið þeirra stendur Rakel Einarsdóttir
100m flugskeið
1. Gunnar Ásgeirsson og Skandall frá Hlíðarbergi 8.42 sek
2. Friðrik Reynisson og Tenór frá Karlsbrekku 8.47 sek
3. Snæbjörg Guðmundsdóttir og Mórall frá Hlíðarbergi 8.49 sek
4. Ída Mekkín Hlynsdóttir og Brák frá Lækjarbrekku 2 8.77 sek
5. Jóna Stína Bjarnadóttir og Narnía frá Haga – lá ekki
800m brokk
1. Eyrún Stína Guðmundsdóttir og Herkúles frá Hjarðarfelli
2. Þeba Björt Karlsdóttir og Gná frá Höfn
350m stökk
1. Eyrún Stína Guðmundsdóttir og Herkúles frá Hjarðarfelli
2. Þeba Björt Karlsdóttir og Gná frá Höfn

Sigurvegari í unghrossaflokki var Hrafn frá Ytri-Skógum og knapi hans Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir. Við hlið þeirra stendur Ingvi Ingólfsson
Unghrossaflokkur
1. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir og Hrafn frá Ytri-Skógum (IS2019184012)
2. Magnús Skúlason og Heiðrún frá Haga (IS2018277241)
3. Ída Mekkín Hlynsdóttir og Skúmur frá Lækjarbrekku 2 (IS2019177157)
4. Snæbjörg Guðmundsdóttir og Líf frá Hlíðarbergi (IS2019277119)
5. Helgi Vigfús Valgeirsson og Ari frá Svanavatni (IS2019184437)
6. Friðrik Reynisson og Sigursteinn frá Lækjarbrekku 2 (IS2020177158)
Gæðingatölt, 2.flokkur
1. Narnía frá Haga og Jóna Stína Bjarnadóttir 8.34
2. Flóki frá Haga og Sigurjón Magnús Skúlason 8.28
3. Gná frá Höfn og Eyvör Stella Guðmundsdóttir 8.12
4. Trítill frá Stóra-Vatnsskarði og Helgi Vigfús Valgeirsson 8.04
5. Máni frá Fornustekkum og Ásthildur Gísladóttir 7.93
Gæðingatölt, unglingar
1. Elín Ósk Óskardóttir og Sara frá Lækjarbrekku 2 8.92
2. Ída Mekkín Hlynsdóttir og Marín frá Lækjarbrekku 2 8.77
3. Bjarni Magnússon og Litla-Jörp frá Fornustekkum 8.07
Gæðingatölt, 1.flokkur
1. Dís frá Bjarnanesi og Snæbjörg Guðmundsdóttir 8.67
2. Stjarna frá Haga og Jóna Stína Bjarnadóttir

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH