Mikil þátttaka í léttari flokkum á íþróttamóti Spretts
Hjónin Sveinbjörn Bragason og Þórunn Hannesdóttir voru í tveimur efstu sætum í tölti 1.flokki
Opið íþróttamót Spretts fór fram um helgina í sumar blíðu. Þátttaka var ágæt og þá sérstaklega í 1.flokki og yngri flokkum.
Þórarinn Ragnarsson og Leikur frá Vesturkoti sigruðu keppni í fjórgangi meistara með nokkrum yfirburðum en einkunn þeirra í úrslitum var 7,53. Í tölti meistara var það Ævar Örn Guðjónsson á Vökli frá Efri-Brú sem stóð efstur með 7,78 í úrslitum.
Valdís Björk Guðmundsdóttir og Fjóla frá Eskiholti voru hlutskarpastar í fimmgangi meistara og hlutu 6,83 í einkunn í úrslitum þá sigraði Edda Rún Guðmundsdóttir slaktaumatölt meistara með 7,21 í einkunn.
Hjónin Sveinbjörn Bragason og Þórunn Hannesdóttir röðuðu sér í tvö efstu sætin í tölti 1.flokki men bæði hlutu þau yfir 7,0 í einkunn í úrslitum. Sveinbjörn Bragason sat Krumma frá Höfðabakka og hlaut hann í einkunn 7,33 og Þórunn var á Þjóð frá Þingholti og hlaut í einkunn 7,17.
Þá var keppni í barnaflokki í háum gæðaflokki eins og alltaf hjá Hestamannafélaginu Spretti. Í Tölti unglinga sigraði Guðný Dís Jónsdóttir á Straum frá Höfsstöðum í Garðabæ með 7,33 í einkunn í úrslitum en hún sigraði einnig fjórgang unglinga. Systir hennar hún Elva Rún stóð efst í tölti barna á Roða frá Margrétarhofi með 6,63 í úrslitum.
Þá hlaut Helena Ríkey Leifsdóttir á Faxa frá Hólkoti 7,10 í einkunn í úrslitum í fjórgangi 1.flokk.
Ásmundur Ernir Snorrason náði frábærum tíma í 100 metra skeiði á Fáfni frá Efri-Rauðalæk, 7,70 sekúndur.
Öll úrslit mótsins eru aðgengileg á LH Kappa.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt