Mikill kostnaður sem fylgir því að halda stórmót í stórborg
Lutz Lezener sér um flest er varðar tæknimál á HM hér í Berlín. Hann er margreyndur á því sviði en einnig alþjóðlegur dómari og þekkir innviði svona stórmóta út og inn.
Aðspurður sagði hann oft skipulagninguna hafa verið dálítið fókna. Það sé mun dýrara að halda stórmót í stórborg en margir halda þar sem það bætast við alls kyns kostnaðarliðir í kringum reglugerðir og öryggismál sem oft eru mun auðleystari í fámennari umhverfi.
Sem dæmi hafi hópreiðiin í gegnum Brandenburgarhliðið verið mjög dýr í framkvæmd þar sem borga þarf fyrir að loka götum og strætum, stjórna umferð og hafa öryggishliðina á hreinu.
Hann er þó mjög ánægður með mótið, segir stemmninguna frábæra, mikill fjöldi gesta og mikið af góðum hestum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH