Milljón fyrir dósir frá Landsmóti
Mótsgestir skiptu þúsundum og skildu eftir sig mikið magn dósa. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir
Samkvæmt Einari Ólasyni, formanni Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð, voru dósirnar taldar í gær og eru þær um 50.000 talsins.
Fyrir hverja dós fást 23 krónur í dag svo sveitirnar Húni við Hvammstanga, Björgunarfélagið Blanda á Blönduósi, Strönd á Skagaströnd, Skagfirðingasveit á Sauðárkróki, Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð og Grettir á Hofsósi skipta með sér um einni milljón króna.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Einar dósasöfnunina algjöran bónus en sveitirnar fengu greitt fyrir að sinna gæslu á mótinu.
„Það er auðvitað hellings vinna og fyrirhöfn að telja þetta og svoleiðis. Það þurfti líka að koma þeim í burtu og fara með gáma upp á Hóla en þetta er góður bónus,“ segir Einar. Tugir björgunarsveitarmanna stóðu vaktina í gæslu á mótinu og unnu þeir alls tæplega 900 vinnustundir að sögn Einars.
„Menn eru náttúrulega að gera þetta í sjálfboðavinnu en sveitirnar fá ágóðann. Við stóðum sólarhringsvakt í viku, frá sunnudagsmorgni fram á sunnudagsmorgun, og vorum með mannaða stjórnstöð á staðnum. Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði tíu á stjórnstöðvagám sem er sérstaklega útbúinn fyrir fjarskipti og þar eru nettengdar tölvur og annað en þetta er mikilvæg fjáröflun fyrir sveitirnar.“
Milljón fyrir dósir frá Landsmóti
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð