Minnum á ljósmyndasamkeppni Eiðfaxa
Löng hefð er fyrir því að Eiðfaxi standi fyrir ljósmyndakeppni á haustin og köllum við nú eftir fallegum myndum í ljósmyndakeppni Eiðfaxa í ár. Keppnin er í fullum gangi og myndirnar streyma inn. Nú er því um að gera að leita uppi vinningsskotið í myndasafni ársins eða arka út í haustið með myndavél að vopni og fanga fagra mynd af fríðum fákum.
Verðlaunin eru ekki af verra tagi
1. verðlaun: Folatollur undir Spuna frá Vesturkoti
2. verðlaun: Prentun á striga og myndavélataska
3. verðlaun: Prentun á striga og frí áskrift að Eiðfaxa í ár
Reglur:
Myndirnar skulu vera a.m.k. 2 mb að stærð og sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected] en mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda við fimm ljósmyndir.
Síðasti skiladagur mynda er föstudaginn 22. nóvember nk.
Innsendar myndir eru eign höfunda, en Eiðfaxi áskilur sér rétt til að birta þær í jólablaði 2013 og tölublöðum næsta árs.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH