Mjölnir og Ófelía hæst dæmd á Margretarhof
Mjölnir fra Lindholm Høje. Ljósmynd: Avelsbedömningar i Sverige
Kynbótasýningu á Margretarhof í Svíþjóð lauk í dag með yfirlitssýningu. Dómarar voru þeir Eyþór Einarsson, Heimir Gunnarsson og Tom Buitjelaar alls voru það 34 hross sem sýnd voru í fullnaðardóm og 4 eingöngu í byggingu. Alls hlutu átta hross einkunn yfir 8,00 og 1.verðlaun.
Sýningin var sýnd í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og er nú aðgengileg áskrifendum okkar inn á streymisveitunni.
Árangursrík ræktun á Lindholm
Hæst dæmda hross sýningarinnar var sex vetra gamall stóðhestur, Mjölnir fra Lindholm Høje. Mjölnir er undan Þránni frá Flagbjarnarholti og Mekkín frá Feti ræktaður af þeim Flemming Fast og Gitte Fast Lambertsen á Lindholm Høje í Danmörku. Sýnandi Mjölnirs var Hlynur Pálsson. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,29, fyrir hæfileika 8,43 og í aðaleinkunn 8,38. Hæst hlaut hann 9,0 fyir samstarfsvilja og fegurð í reið.
Þessi sýning var árangursrík fyrir þau Flemming og Gitte því hæst dæmda hryssan á sýningunni var einnig úr þeirra ræktun. Heitur sú Ófelía fra Lindholm Høje og er undan Skýr frá Skálakoti og Orku frá Kvíarhóli, sýnandi á henni var Karen Konráðsdóttir. Ófelía hlaut 8,43 fyrir sköpulag, 8,34 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,37. Þar á meðal er einkunnin 9,0 fyrir fegurð í reið og hægt tölt.

Ófelía Ljósmynd: Avelsbedömningar i Sverige
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“