Mónika og Árborg farnar út

  • 28. ágúst 2012
  • Fréttir
Mónika og Árborg farnar út

Í sumar hefur verið nokkuð um hrossasölu og hafa margir gæðingarnir skipt um eiganda. Vafi frá Ysta-Mó var seldur til Þýskalands en Fláki frá Blesastöðum 1A er einnig á leið þangað. Vafa þekkja ef til vill margir en hann hefur vakið mikla athygli fyrir mikinn fótaburð og mikinn prúðleika. Vafi er undan Gust frá Hóli og hefur hann hlotið 8,49 í aðaleinkunn þar af 8,68 fyrir hæfileika. Magnús Bragi Magnússon hefur annast þjálfun á hestinum síðust ár og hafa þeir verið áberandi á keppnisvellinum, sérstaklega í A-flokki og fimmgangi. Sonur Magnúsar, Guðmar Freyr, keppti á Vafa í barnaflokki nú í sumar á Vindheimamelum og hlutu þeir 8,72 í einkunn. Nýr eigandi Vafa er Jenny Strahle og býr hún í Suður-Þýskalandi.

Mónika frá Miðfelli flaug til Danmerkur í fyrradag ásamt Árborgu frá Miðey en það var daninn Jens Erik Udsen sem keypti þær. Mónika vakti mikla athygli á Landsmótinu þegar hún hlaut 9,5 fyrir tölt einungis 4 vetra. Mónika er undan Stála frá Kjarri og Andvöku frá Miðfelli 5, Andvaradóttur. Mónika hlaut 8,13 í aðaleinkunn, 8,22 fyrir hæfileika. Árborgu þarf vart að kynna en hún hefur verið í fremstu röð í keppni síðustu ár og þá sérstaklega í tölti. Árborg er undan Dropa fra Haga og Rispu frá Miðey. Árborg hefur hlotið 8,19 í aðaleinkunn, 8,39 fyrir hæfileika þar af 9,5 fyrir tölt, hægt tölt og vilja og geðslag. 

Óskum nýjum eigendum til hamingju með nýju gæðingana sína.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link