Mörg glæsihross mæta í Ölfushöll á morgun
Keppt verður í fimmgangi annað kvöld í Meistaradeild í hestaíþróttum. Eins og alltaf hefst keppnin kl. 19.30 í Ölfushöllinni. Miðað við ráslista mótsins er óhætt að segja að hart verði barist um sæti í úrslitum annað kvöld.
Á ráslistanum er að finna margfalda fimmgangssigurvegara, Íslandsmeistara, hátt dæmd kynbótahross, þaulreynd keppnishross og önnur bráðefnileg.
Forsala aðgöngumiða er hafin í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi. Aðgangseyrir er 1.500 kr. en miðar verða einnig seldir við innganginn. Eins og áður verður bein útsending frá mótinu á Meistaradeildarsíðu Eiðfaxa og á www.meistaradeild.is
Hér að neðan eru ráslistar fyrir annað kvöld:
1. John Kristinn Sigurjónsson-Málning / Ganghestar- Sál frá Ármóti
2. Teitur Árnason – Árbakki / Norður-Götur – Þulur frá Hólum
3. Sigurbjörn Bárðarson – Lýsi – Stakkur frá Halldórsstöðum
4. Elvar Þormarsson – Spónn.is -Skuggi frá Strandarhjáleigu
5. Þórdís Erla Gunnarsdóttir – Auðsholtshjáleiga – Hreggviður frá Auðsholtshjáleigu
6. Sigursteinn Sumarliðason – Spónn.is – Bergþór frá Feti
7. Sigurður Óli Kristinsson – Lýsi – Gígur frá Hólabaki
8. Hulda Gústafsdóttir – Árbakki / Norður-Götur – Seifur frá Prestsbakka
9. Sigurður Sigurðarson – Lýsi – Svalur frá Blönduhlíð
10. Edda Rún Ragnarsdóttir – Auðsholtshjáleiga – Hreimur frá Fornusöndum
11. Arnar Bjarki Sigurðarson – Hrímnir – Vonandi frá Bakkakoti
12. Sólon Morthens – Spónn.is – Frægur frá Flekkudal
13. Bylgja Gauksdóttir – Auðsholtshjáleiga – Andrá frá Dalbæ
14. Anna Valdimarsdóttir – Málning / Ganghestar – Björk frá Vindási
15. Jakob Svavar Sigurðsson – Top Reiter / Ármót / 66°Norður – Hylling frá Flekkudal
16. Hinrik Bragason – Árbakki / Norður-Götur – Glymur frá Flekkudal
17. Þorvaldur Árni Þorvaldsson – Top Reiter / Ármót / 66°Norður – Gjafar frá Hvoli
18. Viðar Ingólfsson – Hrímnir – Már frá Feti
19. Vignir Siggeirsson – Hrímnir – Heljar frá Hemlu
20. Guðmundur Björgvinsson – Top Reiter / Ármót / 66°Norður – Skjálfti frá Bakkakoti
21. Sigurður Vignir Matthíasson – Málning / Ganghestar – Máttur frá Leirubakka
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV