Mundi á Hóli vann folaldasýningu

  • 15. nóvember 2011
  • Fréttir
Mundi á Hóli vann folaldasýningu

Hrossaræktarsamband Dalamanna hélt folaldasýningu í reiðhöllinni í Búðardal, Nesoddahöllinni, laugardaginn 12. nóvember s.l. Þátttaka var ágæt, sýnd voru 6 merfolöld og 13 hestfolöld. Dómari var Sigbjörn Björnsson frá Lundum.

Efst í flokki hryssa varð Urð frá Blönduhlíð, jarpvindótt-stjörnótt folald undan Stefni frá Búðardal og Skriðu frá Ytra-Vallholti en eigandi og ræktandi Urðar er Ásgeir S. Jónsson bóndi í Blönduhlíð. Næst komu tvö folöld úr ræktun Sigurðar Jökulssonar á Vatni.

Af hestunum varð efst ónefnt móvindótt folald frá Hóli í Hörðudal, undan Stefni frá Búðardal og Gjóstu frá Hóli en eigandi og ræktandi folaldsins er  Guðmundur Guðbrandsson sem hestamenn og sveitungar þekkja sem Munda á Hóli. Þessi niðurstaða þótti sérstaklega skemmtileg enda mun þetta hafa verið í fyrsta sinn sem Guðmundur tekur þátt í folaldasýningu en hann er nú 96 ára gamall. Í öðru og þriðja sæti lentu svo folöld frá Vatni og frá Ingibjörgu og Gísla á Spágilsstöðum.

Í höllina mætti ágætis fjöldi áhorfenda og þótti sýningin í alla staði skemmtileg og góð. Áhorfendur kusu svo um fallegasta folaldið og það var Urð hans Ásgeirs í Blönduhlíð sem hlaut þann heiður.

Úrslit sýningarinnar urðu eftirfarandi:

Hestfolöld

1.                          
Ónefndur frá Hóli í Hörðudal. Móvindóttur.
Eigandi og ræktandi: Guðmundur Guðbrandsson á Hóli.
F. Stefnir frá Búðardal. M. Gjósta frá Hóli.
 
2.                            Fjarki frá Vatni. Bleikblesóttur.
Ræktandi: Sigurður Jökulsson á Vatni.
Eigandi: Jóhanna Sigrún Árnadóttir á Stóra-Vatnshorni.
F. Njáll frá Friðheimum. M. Kolka frá Langafossi.
 
3.                            Ónefndur frá Spágilsstöðum. Rauðtvístjörnóttur.
Ræktendur og eigendur: Ingibjörg Eyþórsdóttir og Gísli Þórðarson á Spágilsstöðum.
F. Toppur frá Auðholtshjáleigu. M. Þerna frá Spágilsstöðum.
 
Merarfolöld
 
1.                           Urð frá Blönduhlíð. Jarpvindótt, stjörnótt.
Eigandi/ræktandi Ásgeir Salberg Jónsson.
F. Stefnir frá Búðardal. M. Skriða frá Ytra-Vallholti.
 
2.                            Vildís frá Vatni. Rauðstjörnótt.
Eigendur og ræktendur: Sigurður og Jörundur Jökulssynir á Vatni.
F. Stimpill frá Vatni. M. Sameind frá Vatni.
 
3.                            Begga frá Vatni. Brún
Eigandi og ræktandi: Sigurður Jökulsson á Vatni
F. Abel frá Eskiholti. M. Hildur frá Vatni.

 

Áhorfendur völdu Urð frá Blönduhlíð sem folald sýningarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link