Myndband af heimsókn HorseDay til Filippu Montan
Á Them í Danmörku býr Filippa Montan og er með sína starfsemi í kringum íslenska hestinn. Starfsfólk HorseDay leit inn til Filippu og fengu góðar móttökur og má sjá myndband frá heimsókninni hér fyrir ofan.
Filippa starfar sem reiðkennari og þjálfari en aðallega tekur hún að sér hesta í uppbyggingu og endurhæfingu eftir meiðsli. Sem menntaður Equiopat hefur Filippa mikla þekkingu á, vöðva-, beina-, meina-, líffæra- og lífeðlisfræðilegum hliðum hesta og nýtir sér þá þekkingu til að nudda, þjálfa og byggja hesta upp. Á Them hefur hún frábæra aðstöðu og tæki á borð við vatnsbretti til að sinna slíkum meðferðum.
“Filippa leiddi okkur í gegnum búgarðinn sem er stór og einstaklega fallegur og sagði okkur frá hvernig hún hefur byggt hann upp í gegnum árin. Síðan settumst við niður með og kynntum fyrir henni hvernig HorseDay er í dag og hvernig það gæti nýst henni í sinni vinnu til að halda utan um meðferðir fyrir kúnna ásamt því að halda utan um eigin þjálfun. Það er svo mikilvægt fyrir okkur að tala við utanaðkomandi aðila og fá álit og hugmyndir um hvernig við getum þjónustað okkar notendur sem best. Filippa lifir og hrærist í íslandshesta heiminum en frá öðruvísi vinkli en flestir út frá sinni menntun og endurhæfingar vinnu og var því gaman að heyra hennar skoðanir á vinnu okkar hingað til í HorseDay.” – Oddur Ólafsson, framkvæmdastjóri HorseDay.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
„Einn fyrir alla og allir fyrir einn“