Myndir frá áhugamannadeildinni
Fjórgangskeppni hinnar nýju áhugamannadeildar Spretts fór fram fyrir fjölmenni í Sprettshöllinni í gær. Alls voru 42 keppendur skráðir til leiks með fagra fáka. Sáust þar glæsitaktar og var keppnin ekki síðri skemmtun fyrir áhorfendur en þegar atvinnumenn etja kappi.
Hrafnhildur Jónsdóttir stóð uppi sem sigurvegari á hesti sínum Krafti frá Keldudal eftir spennandi úrslit.
Ljósmyndari okkar, Gígja Dögg Einarsdóttir, fangaði úrslitin á mynd og má nálgast þær hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH