Myndskeið af Agnesi Heklu og Vigni-
Agnes Hekla Helgadóttir og Vignir frá Selfossi voru flottir fulltrúar Íslendinga í ungmennaflokki Heimsmeistaramótsins.
Þau stóðu sig best allra Íslensku ungmennanna í töltkeppninni og hlutu þar 3. verðlaun. Þau riðu svo á vaðið fyrst keppenda í fjórgangskeppninni og voru með fjórðu hæstu einkunn ungmenna. Meðfylgjandi eru myndskeið af sýningum þeirra í forkeppninni.
Í næsta tölublaði Eiðfaxa sest tíðindakona blaðsins niður með ungu knöpunum Agnesi Heklu, Arnari Bjarka, Heklu Katharínuy og Helgu Unu þar sem þau ræða hina stórkostlegu lífsreynslu og glæsta árangur á Heimsmeistaramótinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH