Kynbótasýningar Myrra frá Álfhólum hæst í gær á Hellu

  • 18. júlí 2023
  • Fréttir

Myrra frá Álfhólum, knapi Þorgeir Ólafsson Mynd: Hrefna María Ómarsdóttir

Miðsumarssýningar á Rangárbökkum við Hellu 17. til 21. júlí

Miðsumarssýningin á Hellu fer vel af stað en hámarksfjöldi var 116 hross á sýningunni og fylltist fljótt á hana. Dómarar eru Þorvaldur Kristjánsson, Arnar Bjarki Sigurðsson og Guðbjörn Tryggvason.

24 hross voru sýnd í gær og hlutu þau öll fullnaðardóm.

Efsta hrossið í gær var hin sjö vetra Myrra frá Álfhólum undan Konserti frá Hofi og Móeiði frá Álfhólum. Hlaut hún fyrir sköpulag 8,59 og fyrir hæfileika 8,48 sem gerir í aðaleinkunn 8,52. Hlaut hún m.a. 9,0 fyrir tölt, háls, herðar og bóga, bak og lend, samræmi og samstarfsvilja. Það var Þorgeir Ólafsson sem sýndi hryssuna en hún er í eigu Sævars Arnar Eggertssonar og ræktuð af Söru Ástþórsdóttur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link