Mývatn Open

  • 20. febrúar 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Keppnisgreinar eru tölt A, tölt B og góðhestakeppni

Hið árlega ísmót Mývatn Open verður haldið laugardaginn 8. mars á Stakhólstjörn við Skútustaði. Keppnisgreinar að þessu sinni eru Tölt A, Tölt B og Góðhestakeppni.

Á föstudeginum bjóða hestamannafélagið Þjálfi og Sel-Hótel Mývatn í reiðtúr á ísilögðu Mývatni þar sem boðið verður upp á samlokur og heitt kakó út í eyju – allir hjartanlega velkomnir (ekkert þátttökugjald).

Nánari upplýsingar á vefsíðu Þjálfa: www.thjalfi.123.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link