Nafn komið á hestamannafélag Uppsveitanna
Hestamannafélögin Logi í Biskupstungum, Smári í Hreppum og Trausti í Laugardal og Grímsnesi samþykktu öll á aðalfundum sínum síðasta sumar að sameina skildi félögin þrjú í eitt félag. Nýtt sameinað félag hlaut vinnunafnið hestamannafélag Uppsveitanna en í gær var haldinn fyrsti aðalfundur félagsins og var eitt af málefnunum að velja nafn. Valið stóð á milli eftirfarandi nafna; Frigg, Hestamannafélag Uppsveita, Jökull, Kjölur, Krapi, Skör og Þrenning.
Nafnið Jökull hlaut flest atkvæði.
Starfssvæði sameinaðs félags verður, talið frá vestri til norðurs og austurs; Grímsnes-, og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur og Skeiða-og Gnúpverjahreppur í austri.
Gömlu félögin þrjú voru öll rótgróin í uppsveitunum, Smári stofnað árið 1945, Logi árið 1959 og Trausti árið 1960.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH