Námskeið fyrir nýja kynbótadómara

  • 13. nóvember 2019
  • Fréttir

Kynbótadómar á Melgerðismelum

Námskeið fyrir nýja kynbótadómara verður haldið á vegum FEIF í mars á næsta ári.

Af því tilefni auglýsum við eftir áhugasömum einstaklingum. Þær kröfur sem gerðar eru til menntunar eru BS-gráða í búvísindum, hestafræði eða dýralækningum, reynsla af þjálfun hrossa og að umsækjendur hafi lokið áfanga í kynbótadómum.

Áhugasamir hafi samband við undirritaðan fyrir 25. nóvember nk.

Fyrir hönd RML, Þorvaldur Kristjánsson (thk@rml.is)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar