Námskeið fyrir unga sýnendur kynbótahrossa
Alþjóðlegt námskeið á vegum FEIF fyrir unga þjálfara og sýnendur kynbótahrossa verður haldið að Skeiðvöllum í Landssveit dagana 7. til 10. apríl í vor.
Námskeiðið er ætlað fólki á aldrinum 18 – 30 ára sem hefur reynslu af þjálfun og sýningu kynbótahrossa en hefur áhuga á frekari menntun og þjálfun á því sviði. Markmiðið er einnig að gefa ungum sýnendum kost á að skiptast á skoðunum og fræðast af samherjum á líkum aldri. Hámarksfjöldi þátttakenda eru þrír aðilar frá hverju FEIF landi. Á námskeiðinu verður farið bóklega og verklega yfir sýningu kynbótahrossa. Fyrirlesarar verða kynbótadómarar, ræktendur og þjálfarar auk sýnenda í fremstu röð.
Heildarnámskeiðsgjald er 295 evrur sem inniheldur kennslugögn, gistingu og fæði á Skeiðvöllum. Á Íslandi tekur við umsóknum fyrir hönd FEIF, Þorvaldur Kristjánsson, netfang [email protected] Vegna skipulagningar námskeiðsins þurfa umsóknir um þátttöku að berast í síðasta lagi 11. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar í síma 866-2199.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH