Námskeið í heitjárningum
Á miðvikudaginn næsta 22. október ætlar Íslandsmeistarinn í járningum, Gunnar Halldórsson í samstarfi við hestamannafélagið Grana að halda sýnikennslu í heitjárningum á Mið-Fossum í Borgarfirði. Gunnar ætlar að leyfa áhorfendum að líta aðeins inn í heim heitjárninga.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir hinn almenna hestamann til að öðlast meiri skilning á bæði heitjárningum og járningum almennt.
Sýnikennslan hefst kl 20:00 og kostar 500 kr. inn. Sjoppa er á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH