Námskeið í þjálfun keppnishesta og knapa

  • 28. nóvember 2011
  • Fréttir
Námskeið í þjálfun keppnishesta og knapa

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands stendur fyrir fjögurra helga námskeiði í þjálfun keppnishests og knapa á vorönn. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Þórdís Erla Gunnarsdóttir, reiðkennari.

Námskeiðið er hugsað til að geta hentað öllum þeim sem vilja auka færni sína og komast lengra í að þróa sig sem knapa. Taka þátt í sýningum og keppnum, takast á við stress og álag sem stundum fylgir keppni. Að setja sér markmið, hugsa út fyrir kassann og að endingu auka þekkingu, innsæi og færi á sviði hestamennskunnar sem svo skilar sér í vel þjálfuðum hesti og knapa. Nemar vinna með sinn eigin hest.

Námskeiðið er sett upp sem fjögra helga pakki sem er þá annað hvort 3 helgar og endað á því að taka þátt í móti eða 4 helgar og sett upp mót í lok námskeiðs. Lögð er áhersla á að þátttakendur vinni vel í tímum, þjálfi markvisst á milli helga og leggi sig fram við að læra hver af öðrum.                                                                                                                                                         

Fyrsta helgin:

Farið yfir grunnatriði og upphaf þjálfunartímabilsins bæði að því sem snýr að hestinum og knapanum. Rifjuð upp atriði eins og mikilvægi góðrar ásetu og réttra ábendinga.

Þjálfunarferli hestsins og þjálfunaráætlun, markmiðssetning fyrir veturinn. Andlegt og líkamlega jafnvægi knapa og hests. Fyrst og fremst hugsað til þess að kynnast knapa og hesti greina hvert par fyrir sig. Fóðrun og almennt heilbrigði.

Hver helgi byrjar á fyrirlestri og fá nemendurna lesefni fyrir næsta tíma á eftir og heimaverkefni er lítur að því að setja sér markmið fyrir veturinn, skrifa niður atriðið sem þarf að bæta og setja upp þjálfunaráæltun með aðstoð leiðbeinanda.

Önnur helgin:

Bóklegt: Farið verður yfir þjálfunarstigan í fyrirlestri. Nemendur skili til leiðbeinanda blaði með hlutum sem þeir vilja ná fram hjá hestinum og sjálfum sér.Farið verður yfir hugarfar og  markmiðsetningu. Knapinn er í raun einkaþjálfari hestsins og sjálf síns, hann setur upp þjálfunaráætlun, markmið, telur fram styrkleika og veikleika.

Verklegt: Fyrst og fremst leiðréttingar vinna. Hvernig við náum fram mýkt og léttari svörun. Hvers vegna það sé eftirsóknarvert. Mikilvægi jafnvægi hestsins á gangtegundum, hvernig við getum haft áhrif á það til þess að ná betri árangri. Unnið verður töluvert mikið út frá hverjum og einum hesti og knapa reikna með að byrja með einkatíma og svo 2 saman í stuttum tímum seinni daginn.

Þriðja helgin:

Bóklegt: Fyrirlestur um andlegan undirbúining annars vegar og svo lauslega farið yfir dómskalann og leiðarann. Taktur-Mýkt-Snerpa –Rými. Reyndur dómari kemur og talar um áherslur og úrfærslur hvað beri að varast og hvað sé eftirsóknar vert.

Verklegt: Staðan tekin, hvernig hefur tekist til milli námskeiða. Tekin endanleg ákvörðun með keppnisgreinar. Rennt í gegnum létt prógramm annað hvort inni eða úti eftir verðri / nemendur og leiðbeinandi meta þætti sem má bæta og viðkomandi fær punkta með sér til áréttingar fyrir keppni. Fyrri dagur einkatímar, seinnidagur hóptímar.

Fjórða helgin:

Bóklegt : Uppsetning sýningar, andlega hliðin og að ná stórn á henni. Æfingin skapar meistarann og ekki vera hrædd við að gera mistök.

Verklegt: Fyrri dagurinn farið fyrir uppsetningu sýningarinnar. Upphitun og undirbúningur. Stuttir einkatímar til að fínpússa verkefnið.

Lokadagurinn: Haldið mót!  Umsögn gefin.

 

Leiðbeinendur: Þórdís Erla Gunnardóttir, reiðkennari. Auk aðila er koma að hrossadómum.

Stund og staður:  4.-5. febrúar, 18.-19. febrúar,  3.-4. mars og 17.-18. mars. Á laugardögum eru tímarnir frá 10.00-18.00 og á sunnudögum frá kl 10.00-16.00 (66 kennslustundir), Grænhól (milli Hveragerðis og Selfoss).

Verð: 92.000 kr. Kennsla og aðstaða á staðnum fyrir hross verklegu helgarnar. Skráning stendur til 20. janúar 2012.

Skráning: [email protected] eða í síma 433 5000.

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 20.000 kr af heildarverði (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link