Niðurstöður frá Hestaþingi Snæfellings

  • 4. júní 2023
  • Fréttir

Anna Dóra og Stöð og Haukur og Hnokki

Hestaþing Snæfellings fór fram um helgina í Stykkishólmi.

Stöð frá Bergi og Anna Dóra Markúsdóttir unnu A flokkinn en Anna Dóra var valin knapi mótsins og Stöð hryssa mótsins. Sól frá Söðulsholti og Siguroddur Pétursson unnu B flokkinn og Gustur frá Stykkishólmi og Íris Huld Sigurbjörnsdóttir unnu C1 flokkinn.

Haukur Orri Bergmanna Heiðarsson vann barnaflokkinn á Hnokka frá Reykhólum en Haukur var valinn efnilegasti knapi mótsins og Hnokki hestur mótsins. Sól Jónsdóttir vann unglingaflokkinnn á Ingibjörgu frá Grundarfirði og Gróa Hinriksdóttir vann ungmennaflokkinn á Kötlu frá Reykhólum.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr a úrslitum en HÉR er hægt að sjá heildar niðurstöður mótsins.

A flokkur – A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Stöð frá Bergi Anna Dóra Markúsdóttir 8,64
2 Tign frá Hrauni Siguroddur Pétursson 8,57
3 Árvakur frá Dallandi Guðný Margrét Siguroddsdóttir 8,49
4 Stormur frá Stíghúsi Lárus Ástmar Hannesson 8,45
5 Skuggi frá Hríshóli 1 Lárus Ástmar Hannesson 7,80

B flokkur – A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Sól frá Söðulsholti Siguroddur Pétursson 8,72
2-3 Mær frá Bergi Anna Dóra Markúsdóttir 8,50
2-3 Skarðsvík frá Bergi Jón Bjarni Þorvarðarson * 8,50
4 Bragi frá Hrísdal Ásdís Sigurðardóttir 8,36
5 Sprettur frá Brimilsvöllum Ari Osterhammer Gunnarsson 8,35

C1 flokkur – A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Gustur frá Stykkishólmi Íris Huld Sigurbjörnsdóttir 8,11
2 Roði frá Háa-Rima 1 Margrét Þóra Sigurðardóttir 8,07
3 Móses frá Fremri-Fitjum Torfey Rut Leifsdóttir 7,89
4 Spyrna frá Kópavogi Franziska Maria Kopf 7,67
5 Brynjar Örn frá Kirkjufelli Steinar Björnsson 7,45

Barnaflokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Haukur Orri Bergmann Heiðarsson Hnokki frá Reykhólum 8,77
2 Elín Una Eggertsdóttir Neisti frá Torfunesi 7,70
3 Rebecca Luise Lehmann Tara frá Lýsudal 7,57

Unglingaflokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sól Jónsdóttir Jónína Ingibjörg frá Grundarfirði 8,57
2 Hera Guðrún Ragnarsdóttir Háfeti frá Hrísdal 8,37

B flokkur ungmenna – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Gróa Hinriksdóttir Katla frá Reykhólum 7,99
2 Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir Lotning frá Minni-Borg 7,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link