Niðurstöður frá opnu gæðingamóti á Flúðum
Sigurður Baldur Ríkharðsson stóð efstur unglinga á Auðdísi frá Traðarlandi mynd: Bára Másdóttir
Í gær fór fram lokadagur Opna Gæðingamótsins á Flúðum en á dagskrá voru A úrslit í öllum greinum gæðingakeppninnar. Hestakostur var feiknarlega góður, keppni hörð og einkunnir jafnar. Knapar eiga hrós skilið fyrir flotta reiðmennsku og fagmannlega keppni. Allir voru stundvísir og prúðbúnir og það var virkilega góð stemning á mótinu.
Við í mótanefnd kunnum öllu starfsfólki mótsins okkar bestu þakkir fyrir frábært starf. Einnig viljum við þakka okkar góðu styrktaraðilum fyrir að gera mótið að veruleika, en þeir voru Dýralæknirinn á Flúðum, Gröfutækni, Límtré Vírnet og Lífland. Bára Másdóttir var ljósmyndari mótsins og leysti hún það verkefni feykilega vel af hendi. Eins og fram hefur komið er hægt að hafa samband við hana til að kaupa myndir. Alendis var einnig á staðnum og tók mótið upp og þökkum við þeim kærlega fyrir það. Hægt er að hafa samband við þau til að kaupa myndefni af mótinu.
Mótið var haldið af hestamannafélögunum Loga, Trausta og Smára. Öll félögin veita hæsta félagsmanni sínum í hverri grein farandverðlaun fyrir þeirra árangur. Logi og Trausti afhenda sín verðlaun á aðalfundum félaganna. Smári afhenti verðlaunin við úrslit hvers flokks.
A úrslit í B flokki ungmenna
Thelma Dögg Tómasdótttir var efsti Smárafélaginn.
1 Katla Sif Snorradóttir / Stofn frá Akranesi 8,69
2 Kristófer Darri Sigurðsson / Vörður frá Vestra-Fíflholti 8,61
3-4 Thelma Dögg Tómasdóttir / Póstur frá Litla-Dal 8,57
3-4 Ívar Örn Guðjónsson / Óskahringur frá Miðási 8,57
5 Kristín Hrönn Pálsdóttir / Gaumur frá Skarði 8,37
6 Kári Kristinsson / Hrólfur frá Hraunholti 8,33
7 Bríet Bragadóttir / Grímar frá Eyrarbakka 8,20
8 Teresa Evertsdóttir / Léttir frá Sælukoti 8,17

Katla Sif Snorradóttir og Stofn frá Akranesi
Niðurstöður úr A úrslitum unglingaflokki
Sigrún Högna Tómasdótttir var efsti Smárafélaginn og fékk farandbikar til vörslu í eitt ár.
1 Sigurður Baldur Ríkharðsson / Auðdís frá Traðarlandi 8,64
2-3 Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Garpur frá Skúfslæk 8,57
2-3 Kristján Árni Birgisson / Viðar frá Eikarbrekku 8,57
4 Guðný Dís Jónsdóttir / Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 8,52
5-6 Jón Ársæll Bergmann / Hrafndís frá Ey I 8,46
5-6 Sara Dís Snorradóttir / Þorsti frá Ytri-Bægisá I 8,46
7 Herdís Björg Jóhannsdóttir / Snillingur frá Sólheimum 8,35
8 Sigrún Högna Tómasdóttir / Dáti frá Húsavík 8,08

Sigurður Baldur Ríkharðsson og Auðdís frá Traðarlandi
Niðurstöður úr A úrslitum í barnaflokki
Eyþór Ingi Ingvarsson var efsti Smárafélaginn og fékk farandbikar til vörslu í eitt ár.
1 Þórhildur Lotta Kjartansdóttir / Göldrun frá Hákoti 8,71
2 Elva Rún Jónsdóttir / Roði frá Margrétarhofi 8,68
3 Elísabet Vaka Guðmundsdóttir / Heiðrún frá Bakkakoti 8,67
4 Sigurbjörg Helgadóttir / Elva frá Auðsholtshjáleigu 8,66
5 Sölvi Þór Oddrúnarson / Leikur frá Mosfellsbæ 8,54
6 Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir / Komma frá Traðarlandi 8,53
7 Eik Elvarsdóttir / Tíbrá frá Strandarhjáleigu 8,47
8 Ágúst Einar Ragnarsson / Herdís frá Hafnarfirði 8,35

Þórhildur Lotta Kjartansdóttir
Niðurstöður úr A úrslitum í B flokk gæðingaflokk 2
1 Sveðja frá Skipaskaga / Caroline Jensen 8,44
2 Óskar Þór frá Hvítárholti / Guðrún Margrét Valsteinsdóttir 8,42
3 Sævar frá Ytri-Skógum / Jón Ó Guðmundsson 8,39
4 Náttar frá Hólaborg / Emilia Staffansdotter 8,38
5 Amor frá Reykjavík / Bertha María Waagfjörð 8,32
6 Kvika frá Vallanesi / Rúna Björg Vilhjálmsdóttir 8,21
7 Laki frá Hamarsey / Edda Eik Vignisdóttir 8,18
8 Kappi frá Vorsabæ II / Celina Sophie Schneider 8,10
Niðurstöður úr A úrslitum í B flokki gæðingaflokki 1
Gaukur frá Steinsholti var efsti gæðingurinn frá hestamannafélaginu Smára í B flokki gæðingaflokki 1 og Gunnar Marteinn eigandi hans tók á móti farandbikar til varðveislu í eitt ár.
1 Frár frá Sandhól / Þór Jónsteinsson 8,76
2 Njörður frá Flugumýri II / Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,71
3 Flugar frá Morastöðum / Anna Björk Ólafsdóttir 8,71
4 Rökkvi frá Hólaborg / Þorgeir Ólafsson 8,70
5 Nótt frá Miklaholti / Þórarinn Ragnarsson 8,61
6 Fjalar frá Efri-Brú / Sólon Morthens 8,50
7 Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti / Klara Sveinbjörnsdóttir 8,46
8 Snæþór frá Enni / Þórdís Inga Pálsdóttir 8,44

Frár frá Sandhóli og Þór Jónsteinsson
Niðurstöður úr A úrslitum í A flokki ungmennaflokk
1 Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Björk frá Barkarstöðum 8,37
2 Kristján Árni Birgisson / Rut frá Vöðlum 8,37
3-4 Sigurður Steingrímsson / Ýmir frá Skíðbakka I 8,26
3-4 Hekla Rán Hannesdóttir / Halla frá Kverná 8,26
5 Jón Ársæll Bergmann / Vonar frá Eystra-Fróðholti 8,24
6 Matthías Sigurðsson / Kötlukráka frá Dallandi 8,17
7 Kári Kristinsson / Bruni frá Hraunholti 8,05
8 Arndís Ólafsdóttir / Dáð frá Jórvík 1 7,98
A úrslit A flokkur gæðingaflokkur 2
1 Kraftur frá Breiðholti í Flóa / Hafdís Arna Sigurðardóttir 8,39
2 Hruni frá Friðheimum / Þórey Helgadóttir 8,27
3 Glymur frá Hofsstöðum, Garðabæ / Jón Ó Guðmundsson 8,24
4 Hamingja frá Vesturkoti / Eyrún Jónasdóttir 8,01
5 Matthildur frá Stormi / Einar Ben Þorsteinsson 7,76
A úrslit A flokk gæðingaflokk 1
Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk var efsti gæðingurinn í eigu félagsmanns í hestamannafélaginu Smára í A flokki gæðingaflokki 1. Kristín Magnúsdóttir tók á móti einum elsta farandgrip landsins í tilefni þess en það er Hreppasvipan.
1 Bjarmi frá Litlu-Tungu 2 / Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson 8,79
2 Vörður frá Vindási / Þórarinn Ragnarsson 8,68
3 Myrkvi frá Traðarlandi / Ríkharður Flemming Jensen 8,66
4 Sæla frá Hemlu II / Ragnar Eggert Ágústsson 8,45
5 Garún frá Eystra-Fróðholti / Hans Þór Hilmarsson 8,44
6 Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk / Kristín Magnúsdóttir 8,38
7-8 Katalína frá Hafnarfirði / Sólon Morthens 0,00
7-8 Vaka frá Ásbrú / Jón William Bjarkason 0,00

Bjarmi frá Litlu-Tungu og Sæmundur Þ. Sæmundsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH