Niðurstöður frá töltmóti
Apríl mánuður hefur verið annasamur í reiðhöllinni á Flúðum en aðstaðan þar hefur vel þaulnýtt til þjálfunar, samkomu og mótahalds. Kvöldið fyrir skírdag fór fram sameiginlegt töltmót Loga, Smára og Trausta. Mótið hefur lengi verið á mótaskrá félaganna í Uppsveitunum en síðustu tvö ár fallið niður. Það var því mjög jákvætt að sjá hve margir skráðu sig til leiks og voru tæplega fimmtíu skráningar í þá flokka sem boðið var uppá. Keppt var í barna, unglinga, ungmenna og minna vönum og meira vönum fullorðins. Einhverjir knapar prufuðu hesta sína fyrir lokakvöld Uppsveitadeildarinnar sem fram fer 25.apríl meðan aðrir fengu almenna dóma á hesta sína. Ágæt mæting og góð stemning var meðal áhorfenda sem gátu keypt veitingar hjá Hollvinum reiðhallarinnar sem leggja sitt af mörkum við rekstur reiðhallarinnar.
Í barnaflokki voru átta knapar skráðir til leiks og sigraði Rósa Kristín Jóhannesdóttir (Logi) frá Brekku á Frigg frá Hamraendum með 6.17 fyrir fallega sýningu. Sölvi Freyr Freydísarson (Logi) var annar eftir forkeppni á Máv frá Stóra Vatnsskarði en Þorvaldur Logi Einarsson (Smári) á Brúði frá Syðra-Skörðugili skaust upp fyrir hann í úrslitum og náði öðru sæti. Unnur Kjartansdóttir (Logi) og Einar Ágúst Ingvarsson (Smári) áttu einnig góð tilþrif í úrslitum og fékk Einar Ágúst 4 sæti og Unnur 5.sæti.
Í unglingakeppni voru sjö keppendur skráðir og breyttust efstu þrjú sæti eftir forkeppni ekki í úrslitum. Hrafnhildur Magnúsdóttir (Smári) og glæsihryssan Eyvör frá Blesastöðum sýndu flott tilþrif og voru örugg í fyrsta sæti með 6.61 en í öðru sæti var Karitas Ármann (Logi) á Glóð frá Sperðli og Eva María Larsen á Prins frá Fellskoti.
Í ungmennaflokki birtist stór og öflugur hópur ungmenna sem standa fullorðnum og vanari keppendum ekki langt að baki. Mörg þeirra taka meðal annars þátt í Uppsveitadeildinni og á öðrum félagsmótum. Fjórtán keppendur voru skráðir og sýndu bræðurnir frá Brekku Jón Óskar og Finnur Jóhannessynir (Logi) frábær tilþrif og stóðu efstir eftir forkeppni. Jón Óskar fór með tvo hesta í úrslit, Eld frá Gljúfri (6.47) og Óðinn frá Áskoti og valdi Eld frá Gljúfri í úrslit. Í úrslitum urðu þeir bræður efstir með sömu einkunn (6.17) og var varpað hlutkesti hvor þeirra fengi fyrsta sæti. Það kom í hlut Finns sem var á hestinum Kerti frá Torfastöðum. Í þriðja sæti var Guðjón Hrafn Sigurðsson á NN frá Syðri Hofdölum með einkunnina 5.33. Björgvin Ólafsson (Smári) frá Hrepphólum var öflugur í ungmennaflokki og var með hesta í fjórða, sjötta og ellefta sæti eftir forkeppnina og hélt fjórða sæti í úrslitum á Spegli frá Hrepphólum. Bryndís Heiða Guðmundsdóttir varð í fimmta sæti á Þyt frá Kirkjuferju.
Í öðrum flokki fullorðinna voru fimm keppendur skráðir til leiks og sigraði Sigurður Halldórsson á Lukku frá Bjarnastöðum forkeppnina og úrslitin. Í öðru sæti varð Hannes Gestsson á Garpi frá Kálfhóli og í þriðja Sigurður Haukur Jónsson á Hugni frá Skollagróf.
Helstu atvinnumenn og vönustu knapar Uppsveitanna kepptu í fyrsta flokki fullorðinna. Falleg tilþrif og glæstir gæðingar sáust í brautinni. Eftir forkeppni stóð Líney Kristinsdóttir (Logi) á Rúbín frá Fellskoti efst með 6.43 og hækkaði hún í úrslitum í 6.61 og sigraði. Sólon Morthens (Logi) var í öðru sæti eftir forkeppnina á glæsilegum stóðhesti Káti frá Efstadal II með einkunnina 6.17. Guðjón Sigurðsson skaust upp fyrir hann í úrslitum með góðri sýningu og náði öðru sæti með 6.50 í einkunn en Sólon varð þriðji með 6.17. Ragnheiður Bjarnadóttir á Eldingu frá Laugarvatni og Sigfús Guðmundsson á Vonarneista frá Vestra Geldingarholti voru jöfn í fjórða og fimmta sæti og vörpuðu hlutkesti og kom fjórða sætið í hlut Sigfúsar.
Úrslit börn
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Rósa Kristín Jóhannesdóttir / Frigg frá Hamraendum 6,17
2 Þorvaldur Logi Einarsson / Brúður frá Syðra-Skörðugili 5,42
3 Sölvi Freyr Freydísarson / Mávur frá Stóra-Vatnsskarði 5,25
4 Einar Ágúst Ingvarsson / Punktur frá Fjalli 2 3,83
5 Unnur Kjartansdóttir / Bliki frá Efri-Brúnavöllum I 3,58
Úrslit 1.flokkur
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Líney Kristinsdóttir / Rúbín frá Fellskoti 6,61
2 Guðjón Sigurðsson / Þyrnirós frá Reykjavík 6,50
3 Sólon Morthens / Kátur frá Efsta-Dal II 6,17
41734 Sigfús Guðmundsson / Vonarneisti frá Vestra-Geldingaholti 5,83
41734 Ragnheiður Bjarnadóttir / Elding frá Laugarvatni 5,83
Úrslit unglingar
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Hrafnhildur Magnúsdóttir / Eyvör frá Blesastöðum frá Blesastöðum 6,61
2 Karitas Ármann / Glóð frá Sperðli 4,94
3 Eva María Larsen / Prins frá Fellskoti 4,72
41734 Elín Helga Jónsdóttir / Óður frá Ytri-Sólheimum II 3,89
41734 Helgi Valdimar Sigurðsson / Fylkir frá Skollagróf 3,89
Úrslit ungmenni
Sæti Keppandi Heildareinkunn
41641 Finnur Jóhannesson / Körtur frá Torfastöðum 6,17
41641 Jón Óskar Jóhannesson / Eldur frá Gljúfri 6,17
3 Guðjón Hrafn Sigurðsson / Nn frá Syðri-Hofdölum 5,33
4 Björgvin Ólafsson / Spegill frá Hrepphólum 5,17
5 Bryndís Heiða Guðmundsd. / Þytur frá Kirkjuferju 4,61
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH