Niðurstöður heilbrigðisskoðunar keppnishesta á LM2011

  • 23. nóvember 2011
  • Fréttir
Niðurstöður heilbrigðisskoðunar keppnishesta á LM2011

Út er komin skýrsla sem dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun hefur í samvinnu við Landsamband hestamannafélaga þróað fyrirkomulag heilbrigðisskoðana á keppnishestum á Landsmóti undir heitinu „Klár í keppni“. Markmiðið er að tryggja að aðeins heilbrigðir hestar og vel þjálfaðir komi til keppni. Skoðun keppnishesta á LM 2011 leiddi í ljós að særindi í munni hesta eru viðvarandi vandamál sem brýnt er að finna lausn á. Sömuleiðis þarf að gæta að heilbrigði fóta og fyrirbyggja að hestar grípi á sig í keppni

 
Á Landsmóti var í fyrsta sinn leitað skipulega að áverkum á kjálkabeini. „Skoðunin leiddi í ljós að þar var að finna bólgur og sár hjá 15% hrossanna (alls 51 hrossi, þar af annars stigs áverkar hjá 17 hrossum og þriðja stigs hjá einu). Þessir áverkar reyndust vera hrein viðbót við áverka á mjúkvef (slímhúð innan á kinnum og í munnvikum) sem var eins og á fyrri mótum að finna í um fjórðungi hrossanna (91 hross).“
 
Einnig kemur fram að minna hafi borið á bólgnum fótum en oft áður. „Ágrip voru ekki algeng að undanskildum ágripum á olnboga sem voru áberandi eftir keppni í A-flokki gæðinga. Skoðun eftir milliriðil í þeim keppnisflokki leiddi í ljós olnbogaágrip hjá 7 af 29 hestum eða 24% sem verður að teljast áhyggjuefni. Flest ágripanna voru tiltölulega væg og ekki varð vart við eymsli eða sársauka í tengslum við þau,“ segir m.a. í skýrslunni sem lesa má í fullri lengd hér.
 
Skýrslan hefur verið send félagasamtökum hestamennskunnar og verður nýtt í sameiginlegu átaki til að auka velferð íslenska hestsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link