Nína frá Kirkjubæ var sú eina sem hlaut ELIT verðlaun
Elva från Solbacka Mynd: Mette Lund Lindberg
Um helgina fór fram haustfundur SIF Avel eða ræktunarsamtaka SIF (Svenska Islandshastförbundet). Veitt voru ýmis verðlaun tengd ræktun, þ.á.m. ræktunarbú ársins, kynbótaknapi ársins, sporthestur ársins, heiðursverðlaun og fleira.
Nokkrum hryssum voru veitt afkvæmaverðlaun en í Svíþjóð hljóta hryssur heiðursverðlaun ásamt því að geta hlotið þrenns konar önnur afkvæmaverðlaun sem er sér sænskt; Elite verðlaun, fyrstu verðlaun og önnur verðlaun
Til að fá heiðursverðlaun gilda sömu reglur og hér heima (5 dæmd afkævmi og 116 stig í kynbótamati). Engin hryssa hlaut heiðursverðlaun í Svíþjóð í ár.
Elite verðlaun fyrir afkvæmi (Elit för avkommor) – 5 dæmd afkvæmi og vera með 110 stig í kynbótamati.
Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi (Klass 1 för avkommor) – 3 sýnd afkvæmi, vera með 110 stig í kynbótamati og aldursleiðrétt aðaleinkunn afkvæma þarf að vera yfir 8,00 eða 8,30 án skeiðs.
Önnur verðlaun fyrir afkvæmi (Klass 2 för avkommor) – 3 sýnd afkvæmi, vera með 105 stig í kynbótamati og aldursleiðrétt aðaleinkunn afkvæma þarf að vera yfir 7,75 eða 8,00 án skeiðs.
Nína frá Kirkjubæ var sú eina sem hlaut ELIT verðlaunin. Nína er 28 vetra undan Flygli frá Votamúla 1 og Nönnu frá Kirkjubæ. Nína er með 112 stig í kynbótamati og á fimm sýnd afkvæmi; Fidla från Westerlund (f. Frami från Häringe) – 8.34, Mina från Westerlund (f. Jór frá Kjartanstödum) – 7.92, Fiona från Westerlund (f. Geimfari frá Lind) – 7.86, Diva Ninadóttir från Westerlund (f. Divar från Lindnäs) – 7.83, Hlin från Westerlund (f. Fannar frá Audsholtshjáleigu) – 7.81.
Eftirfarandi hryssur hlutu fyrstu verðlaun (Klass 1 för avkommor)
| Nafn | Aldur | BLUP | Fjöldi afkvæma | Aldursleiðrétt me. afkv. |
| Prinsessa från Agersta | 19 | 109 | 4 | 8,02 |
| Smáralind frá Syðra-Skörðugili | 20 | 114 | 3 | 8,29 |
| Álaborg frá Feti | 21 | 117 | 3 | 8,17 |
| Þota frá Flagbjarnarholti | 16 | 120 | 3 | 8,10 |
| Rakel Rakel från Hyndevad | 17 | 120 | 3 | 8,30 |
| Björk frá Enni | 122 | 3 | 8,13 | |
| Ásdis från Knutshyttan | 15 | 123 | 3 | 8,09 |
| Elva från Solbacka | 15 | 125 | 3 | 8,18 |
Eftirfarandi hryssur hlutu önnur verðlaun (Klass 2 för avkommor)
| Nafn | Aldur | BLUP | Fjöldi afkvæma | Aldursleiðrétt me. afkv. |
| Fanndís frá Auðsholtshjáleigu | 17 | 109 | 3 | 7,90 |
| Venus från Hocksbo | 22 | 118 | 3 | 7,52 |
| Sæta från Edeby | 15 | 114 | 3 | 7,96 |
| Freydis från Killebacken | 15 | 109 | 3 | 8,18 |
| Fjöður frá Enni | 23 | 105 | 3 | 7,87 |
| Blökk frá Hemlu | 25 | 99 | 7,75 | 8,13 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH