Níutíu Reiðmenn
Reiðmaðurinn, nám LBHÍ á Hvanneyri í reiðmennsku, hófst fyrir skömmu með verklegri helgi í Víðidal, á Akureyri og í Borgarnesi. Námið var fyrst í boði árið 2008 og hefur þróast jafnt og þétt með breyttum kennsluháttum og áherslum við þjálfun og útfærslu æfinga. Í vetur verða 90 nemar í náminu í sjö hópum, þar af eru tveir nýir á Hellu og í Víðidal. Hópar á öðru ári eru á Flúðum, Hafnarfirði, Borgarnesi, Akureyri og á Fljótsdalshéraði. Í upphafi hverrar annar koma kennarar og umsjónarmenn Reiðmannsins saman og fara yfir helstu áherslur í kennslu vetrarins.
Meðfylgjandi mynd var tekin á slíkum fundi sem fram fór í síðastliðinni viku. Frá vinstri: Gunnar Reynisson, Reynir Örn Pálmason, Ísleifur Jónasson, Erlingur Ingvarsson, Heimir Gunnarsson, Þorvaldur Kristjánsson og fyrir framan f.v. Ásdís Helga Bjarnadóttir, Reynir Aðalsteinsson og Anna s. Valdimarsdóttir.
A landsliðshópur Íslands