Njála efst í Danmörku
Stormur frá Lysholm er hæst dæmdi dansk fæddi hesturinn í Danmörku. Mynd: Magasinettolt.dk
FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum. Samkvæmt tölum FEIF er Danmörk það land sem er með þriðja mestan fjölda af skráðum hrossum á lífi eða 41.442 talsins. Fjöldi hrossa hefur verið á bilinu 40 – 45 þúsund síðustu fimm árin.

Fjöldi skráðra hrossa á lífi í Danmörku síðustu fimm ár
121 hross voru sýnd í fullnaðardóm í Danmörku í ár á sex kynbótasýningum. Það hefur aftur átt sér stað aukning í fjölda fullnaðardæmdra hrossa sem fór smá niður á við árið 2019. Af þessum 121 hrossi eru 76 hross fædd í Danmörku. Flest hross voru skráð á kynbótasýninguna í Herning 10. – 12. júní. Dómarar á sýningunni voru Silke Feuchthofen (DE), Nina Bergholtz (SE) og Óðinn Örn Jóhannsson (IS).

Fjöldri sýnda hrossa í fullnaðardóm í Danmörku
Efsta hrossið sem sýnt var í Danmörku er Njála vom Kronshof en hún hlaut 8,47 í aðaleinkunn, hún var jafnframt með hæstu hæfileika einkunnina 8,55. Hæst dæmda danskt fædda hrossið er Stormur fra Lysholm en hann hlaut 8,36 í aðaleinkunn, 8,14 fyrir sköpulag og 8,48 fyrir hæfileika.
Hæstu sköpulagseinkunnina hlautu þeir Náttfari fran Gunvarbyn og Taktur fra Rank en þeir hlutu báðir 8,79 fyrir sköpulag. Náttfari hlaut 8,15 fyrir hæfileika og 8,38 í aðaleinkunn. Taktur hlaut 7,52 fyrir hæfileika og 7,97 í aðaleinkunn. Náttfari er fæddur í Svíþjóð.
Meðalaldur þeirra hrossa sem hlutu fullnaðardóm í Danmörku er 6,10 ár. Meðaltal sköpulagseinkunnar er 8,05, hæfileikaeinkunnar er 7,76 og aðaleinkunnar 7,86. 36 hross hlutu fyrstu verðlaun, 22 af þeim eru fædd í Danmörku.
Agnar Snorri Stefánsson sýndi flest hross í Danmörku eða 27 talsins en næstur á eftir honum er Sigurður Óli Kristinsson með 19 hross
Tíu hæst dæmdu hrossin í Danmörku
| Fæðingarnúmer | Nafn | Uppruni í þgf, | Sýnandi | Aðaleinkunn |
| DE2015234888 | Njála | Kronshof | Kronshof GbR | 8,47 |
| IS2017188026 | Krókur | Háholti | Sigurður Óli Kristinsson | 8,44 |
| SE2014106693 | Náttfari | Gunvarbyn | Anne Stine Haugen | 8,38 |
| DK2017100190 | Stormur | Lysholm | Debelmose Isheste v, Søren Madsen | 8,36 |
| DK2016200137 | Góa | Skovhuset | Søren Madsen | 8,33 |
| DE2016134224 | Óríon | Kronshof | Kronshof GbR | 8,32 |
| IS2014288690 | Vísa | Efri-Brú | Søren Madsen | 8,31 |
| IS2015182088 | Funi | Akri | Rasmus Møller Jensen | 8,3 |
| DK2016100459 | Húni | Stutteri Sonne | Agnar Snorri Stefansson | 8,28 |
| DK2017100317 | Baltasar | Guldbæk | Rasmus Møller Jensen | 8,27 |
| DE2016234181 | Oddný | Kronshof | Kronshof GbR | 8,27 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH