„Nóg að gera“ segir Viðar Ingólfsson

  • 13. október 2010
  • Fréttir
„Nóg að gera“ segir Viðar Ingólfsson

Viðar Ingólfsson tamningamaður á Kvíarhóli í Ölfusi hefur nóg að gera þessa dagana…

, sem er mjög gott í kjölfar einkennilegs tímabils sm nú vonandi er um garð gengið. Eiðfaxi spjallaði við Viðar:
„Hér erum við búin að vera að frumtemja um 12-14 tryppi undanfarnar vikur og hefur það gengið mjög vel. Tryppin hafa virst heilbrigð, þó hafa 3-4 aðeins hóstað fyrstu vikuna eftir að þau koma inn en svo orðið góð. Ég verð ekkert var við horrennsli hvorki í hrossunum sem eru á húsi, né í þeim sem eru úti. Flest folöldin eru reyndar frekar snemmköstuð þannig að þau fóru í gegnum hósta tímabilið miðsumars og eru eldfrísk núna“
„Markaðurinn er búinn  að vera góður og erum við Guðmundur Björgvinsson á Ingólfshvoli að vinna saman með söluhrossin. Við erum búnir að selja 10-12 hross síðan um miðjan september og erum mjög ánægðir með það. Þessi hross hafa öll farið á erlendan markað. Það sem selst eru góðu hrossin, bæði efnileg ræktunarhross og keppnishross.
Það er frekar dauft yfir innanlands markaðnum. Ein og ein fyrirspurn“.
Hvað með næsta keppnistímabil, er Viðar að þjálfa upp nýja keppnishesta?
„Ég er að þjálfa Má frá Feti, hann verður held ég mjög sterkur næsta sumar, frábær fimmgangshestur. Svo eru hér nokkrar mjög efnilegar hryssur en maður veit ekki hve sterkar þær verða fyrr en nær dregur vori“.
Aðspurður um hugsanlega þátttöku í úrtöku fyrir HM segir Viðar: „Ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum. Hvort við förum með Tuma í úrtöku er algerlega óvíst“.
En Meistaradeild VÍS. Ætlar Viðar að taka þátt í henni í vetur?
„Já, það geri ég örugglega. Ég hef á tilfinningunni að meistaradeildin verði mjög vinsæl í vetur eftir þetta rólega og frekar leiðinlega ár“ sagði Viðar að lokum.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link