Nokkur pláss laus

  • 23. júlí 2015
  • Fréttir
Sónað verður í dag hjá Vökli frá Leirubakka

Hryssur hjá stóðhestinum Vökli frá Leirubakka verða sónarskoðaðar í dag og verður haft samband við eigendur þeirra hryssa sem þegar eru fylfullar. Þá verður einnig tekið á  móti nýjum hryssum og eru nokkur pláss laus hjá hestinum.

Vökull frá Leirubakka er fjögra vetra og  hlaut fyrstu verðlaun á kynbótasýningu í vor; 8.22 fyrir sköpulag og 8.27 fyrir hæfileika og 8.25 í aðaleinkunn.Hann er hæst dæmdi íslenski  4ra vetra stóðhesturinn í heiminum það sem af er  ári  2015.

Vökull er undan fyrstu verðlaunahryssunni Emblu frá Árbakka sem er móðir margra kynbóta- og keppnishrossa. Faðir Vökuls er svo Héðinn frá Feti, sem er m.a. með 8.80 í einkunn fyrir hæfileika.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link