Norðurlandamót handan við hornið

  • 4. júlí 2012
  • Fréttir
Norðurlandamót handan við hornið

Norðurlandamótið í hestaíþróttum fer fram í Eskilstuna í Svíþjóð dagana 1. – 5. ágúst n.k. Ísland sendir átján knapa á mótið, 10 fullorðna og 8 unglinga/ungmenni en LH minnir á mótið í fréttatilkynningu:

 
„Norðurlandamótið er eitt sterkasta alþjóðlega mótið í Íslandshestaheiminum þetta árið og því ljóst að keppnin verður hörð og hart barist um efstu sætin.
Íslensku knaparnir útvega sér hesta sjálfir en þó er hægt að aðstoða unglingar/ungmenni ef þess gerist þörf.
Margir mjög frambærilegir knapar hafa sótt um að komast í íslenska landsliðið en tilkynnt verður um val liðsins um miðjan júlí,“ segir í tilkynningunni en  nánari upplýsingar um mótið: www.nc2012.se.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link