Nótt hlaut glæstan dóm!

  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Nótt frá Tjaldhólum og Teitur Árnason á Landsmóti 2024 þegar Nótt var 4.vetra. Ljósmynd: KollaGr

Tvær tíur í hæfileikadómi

Það er ekkert lát á gæðingum á kynbótabrautinni á vorsýningu á Hellu sem fram fer þessa vikuna. Forsýningum lauk nú í kvöld og yfirlit fer fram á morgun og hefst það klukkan 08:00 í fyrramálið. Að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og þar er einnig hægt að horfa á alla viðburði sem sýnt er frá eftir að þeim er lokið.

Mögnuð Tjaldhóla-Nótt

Nú í síðasta hollinu kom m.a. fram hin sex vetra gamla Nótt frá Tjaldhólum sýnd af Teiti Árnasyni og hlaut hún glæsilegan klárhryssudóm. Hún hlaut m.a. einkunnina 10,0 fyrir tölt og samstarfsvilja og 9,5 fyrir greitt stökk, hægt stökk, samstarfvilja, fegurð í reið og hægt tölt. Nótt er undan Skarpi frá Kýrholti og Sýn frá Árnagerði. Ræktandi hennar er Guðjón Steinarsson sem er eigandi ásamt Ragnari Rafael Guðjónssyni. Fyrir sköpulag hlaut Nótt 8,56, fyrir hæfileika 8,66 og í aðaleinkunn 8,63.

Hollaröðun á yfirlit morgundagsins verður birt á vef RML seinna í kvöld þegar hún liggur fyrir.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link