Ný reiðhöll hestamannafélagsins Sörla

  • 6. október 2022
  • Fréttir
Bæjarráð samþykkir framkvæmdaáætlun um byggingu nýrrar reiðhallar Sörla

Á fundi í morgun samþykkti bæjarráð Hafnafjarðarbæjar framkvæmdaáætlun um byggingu nýrrar reiðhallar Sörla en þetta kemur fram á heimasíðu hestamannafélagsins. 

Um tímamóta samþykkt er að ræða og ljóst að ný reiðhöll Sörla mun rísa og opna árið 2025.

Formaður Sörla, Atli Már Ingólfsson, vildi láta hafa þetta eftir sér í morgun:

„Þetta eru frábærar fréttir. Næstu skref eru þau að nú liggur fyrir að boða til formlegrar undirritunar samninga við verktaka verksins, Eykt.

Samkvæmt tillögum framkvæmdahóps sem í eiga sæti fulltrúar frá Hafnafjarðarbæ og fulltrúar Sörla er gert ráð fyrir því að framkvæmdir við fyrsta áfangi hefjist í apríl 2023 og verði lokið 2025. Gert er ráð fyrir því að reiðgólf nýrrar reiðhallar verði tilbúið til notkunar í janúar 2025.

Það er ástæða til að gleðjast í dag og fagna þessum áfang, en geyma alvöru fögnuðinn fram í apríl 2023 þegar byrjað verður að grafa fyrir grunni hallarinnar. Nú og svo eru sumir farnir að hlakka til opnunarinnar, já eru ekki Sörlakonur að æfa töltslaufur sem á að frumsýna þá“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar