Ný staðsetning á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna árið 2027
Það verður nóg að gera hjá Sleipnismönnum næsta sumar á Íslandsmóti. Á myndinni er formaður Sleipnis Berglind Sveinsdóttir að undirbúa verðlaunaveitingu á Íslandsmóti árið 2025. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Í frétt á heimasíðu LH kemur fram að Stjórn LH hafi falið Hestamannafélaginu Sleipni að halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna sem fram fram dagana 16.-20.júní 2027. En Hestamannafélagið Skagfirðingur fékk mótinu upphaflega úthlutað og eftir samtal um mögulega dagsetningu gaf félagið mótið frá sér, þar sem dagsetning upp úr miðjum júní gerði þeim erfitt fyrir að halda mótið. Við þökkum Skagfirðingum fyrir að hafa sýnt aðstæðum skilning.
Þá kemur einnig fram í tilkynningu frá LH að Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram í Rieden í Þýskalandi dagana 27. júlí- 1. ágúst 2027, eða viku fyrr en venjan er. Í aðdraganda mótsins er Íslandsmótið einn mikilvægasti hlekkurinn þegar kemur að því að velja fulltrúa Íslands til þátttöku á mótinu.
Afreks- og landsliðsnefnd fór þess á leit við stjórn LH að mótið yrði haldið 16.-20. júní 2027 til að tryggja rúman tíma til þess að tilkynna landslið og undirbúa útflutning á hrossunum til Þýskalands, ásamt því að landsliðsknapar fá þannig tækifæri til þess að undirbúa hesta sína á sem allra bestan hátt fyrir HM, en brottför er áætluð þann 19. júlí.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Meistaradeild ungmenna í beinni á EiðfaxaTV