Ný stjórn Skagfirðings
Ný stjórn Skagfirðings mynd: Skagfirðingur
Aðalfundur Skagfirðings var haldinn í Tjarnabæ þann 5.mars síðastliðinn og mættu um 30 manns á fundinn.
Kosið var í nefndir og er búið að uppfæra þær á heimasíðu Skagfirðings.
Kosið var í stjórn félagsins en Skapti Steinbjörnsson og Ása Hreggviðsdóttir gengu úr stjórn og var þeim þakkað fyrir frábært og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Elvar Einarsson var kosinn formaður og ný inn í stjórn komu Unnur Rún Sigurpálsdóttir og Geir Eyjólfsson. Kosnir voru tveir nýjir varamenn í stjórn og eru það Bjarni Jónasson og Sara Gísladóttir.
Stefán Logi kom í pontu fyrir hönd stjórnar LH og bað fyrir kveðju frá formanni LH til félagsmanna Skagfirðings.
Kom meðal annars í ljós að Skagfirðingur hefur sótt um að halda Landsmót 2024 að Hólum í Hjaltadal en tvö önnur félög sóttu einnig um það sama Landsmót. Landsmótsstaður verður ákveðinn seinna á árinu. Skagfirðingur heldur Landsþing LH í Miðgarði í haust og Lárus formaður LH hefur gefið það út að hann ætli ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formannssetu.
Elvar Einarsson, formaður
[email protected]
Pétur Örn Sveinsson, varaformaður
[email protected]
Rósa María Vésteinsdóttir, gjaldkeri
[email protected]
Unnur Rún Sigurpálsdóttir, ritari
[email protected]
Geir Eyjólfsson, stjórnarmaður
[email protected]
Sara Gísladóttir, varamaður
[email protected]
Bjarni Jónasson, varamaður
[email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH