Nýjar stjörnur og aðrar þekktar á stóðhestaveislu Rangárhallar
Sær frá Bakkakoti, Þóroddur frá Þóroddstöðum, Hrymur frá Hofi og Sveinn-Hervar frá Þúfu koma fram með afkvæmum sínum á stóðhestaveislu Rangárhallarinnar sem fram fer nk. laugardag kl. 13.
Í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar kemur fram að fjöldi gæðinga bregði á leik í Rangárhöll, bæði nýjar stjörnur í bland við þekkta háttdæmda hesta, þeirra á meðal eru eftirfarandi hestar:
Héðinn frá Feti
Ágústínus frá Melaleiti
Þulur frá Hólum
Gljúfri frá Berg
Kolviður frá Strandarhöfði
Ísak frá Skíðbakka 1
Skuggi frá Hofi 1
Kórall frá Lækjarbotnum
Sæhylur frá Stóru-Hildisey
Bjarkar frá Tóftum
Fursti frá Stórahofi
Gautrekur frá Torfastöðum
Hringur frá Skarði
Kjerúlf frá Kollaleiru
Njáll frá Friðheimum
Seifur frá Prestsbakka
Spói frá Hrólfsstaðahelli
Brestur frá Lýtingsstöðum
Fögnuður frá Vatnsenda
Þristur frá Þorlákshöfn
Aðgöngumiðar eru seldir í Fóðurblöndunni á Hvolsvelli, Klippistofunni á Hellu, Baldvin og Þorvaldi á Selfossi og Líflandi í Reykjavík. Miðaverð er 2.500 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH