Nykur
Margar eru þjóðsagnaverurnar í íslenskri sagnahefð og þekking á þeim er hverjum manni nauðsynleg. Nykurinn er ein af þeim vættum sem umlukin er þjóðsögulegri dulúð. Hann er skepna af öðrum heimi sem er mönnum oftast óvinveittur og jafnvel hættulegur.
“Megineinkenni nykursins er að hófar snúa aftur en hófskegg fram. Mikið fax og flókið prýðir oftar en ekki höfuð hans. Hrúðurkarlar prýða hófa og feld þeirra nykra er heimkynni eiga í sæ. Hárafar hans er sérkennilegt og bregður þar gjarnan fyrir ýmiskonar mynstrum er ekki sjást á öðrum hrossakynjum. Áferðin líkist selskinni en viðkoman er helköld. Stirnir þar á sem silfur í sólskini, misdökkt eftir lit hans. Helsta litarafbrigðið er grátt en stundum jarpt og blásvart sést þó sjaldgæft sé. Slóð nykursins er blaut enda drýpur í sífellu af honum. Nykurinn er hljóðlátur og birtist þá er hans er síst von.”
Umfjöllun um hina dularfullu þjóðsagnaveru, nykurinn, má nálgast í jólablaði Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH