Nýr myndbandavefur

  • 21. júní 2011
  • Fréttir
Nýr myndbandavefur

Eiðfaxi hefur nú opnað nýjan myndbandavef. Þar má sjá áður birt myndbönd sem fylgt hafa fréttum auk fleiri áður óbirtra myndskeiða, bæði af kynbótahrossum, brot úr mótum og af sýningum.

Von Eiðfaxa er sú að vefurinn vaxi og dafni í takt við bættan fréttamiðil og óskar hann því eftir fleiri myndböndum til birtingar.

Meðfylgjandi er myndband sem Eiðfaxi fékk góðfúslegt leyfi til að birta á vefnum, hér má sjá stóðhest sem mun mæta til leiks í flokk 5 vetra stóðhesta á Landsmóti. Símon frá Efri-Rauðalæk stóð efstur á Héraðssýningu á Hvammstanga í maí, en hann fékk í aðaleinskunn 8,36, einkunnina 8,33 fyrir sköpulag og 8,38 fyrir hæfileika. Símon er undan Galsa frá Sauðárkróki og Pandóru frá Tungu.

Kíkið á fleiri hross á Myndbandavef Eiðfaxa!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link