Nýr rekstrarstjóri Sörla
Brynja Björk Garðarsdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri Hestamannafélagsins Sörla frá og með 1.október, skv. tilkynningu frá félaginu. Hún er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, MSc í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands. Brynja Björk hefur m.a starfað við fjármálastjórn, blaðamennsku, markaðsráðgjöf og almannatengsl. Brynja Björk hefur stundað hestamennsku til fjölda ára.
Hestamannafélagið Sörli var stofnað árið 1944 og er því sjötíu ára. Sörli er með starfsemi sína í Hafnarfirði og eru tæplega 1000 félagsmenn.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing