Nýr starfsmaður á skrifstofu LH
Hinrik Þór Sigurðsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri afreks- og mótamála á skrifstofu LH. Hinrik mun stýra greiningarvinnu er varðar skipulag mótahalds og keppni í hestaíþróttum og skipulagningu afreksmála LH.
Hinni kemur úr Hafnarfirði og er félagi í Hestamannafélaginu Sörla þar sem fjölskyldan stundar sína hestamennsku. Hann hefur starfað sem yfirþjálfari Sörla í nokkur ár og var umsjónarmaður Reiðmannsins hjá Landbúnaðarháskóla Íslands frá árinu 2016-2021. Hinni er menntaður reiðkennari og þjálfari frá Hólaskóla og hefur starfað við reiðkennslu og námskeiðahald um allan heim síðasliðin 20 ár ásamt því að vinna með fyrirlestra og fræðslu á sviði hugarþjálfunar fyrir íþróttafólk í ýmsum greinum. „Ég er svakalega spenntur fyrir því að taka við þessu starfi, og finnst mikill heiður að fá að starfa í Laugardalnum innan um íþróttahreyfinguna og vinna að framgangi okkar íþróttar, og geta í samstarfi við gott fólk úti í greininni haft áhrif á umhverfi afreks- og mótamála í hestamennskunni.”
Hinrik hóf störf í dag þann 2. ágúst og er hann boðinn velkominn til starfa.
Aðrir starfsmenn skrifstofu LH eru Berglind Karlsdóttir framkvæmdastjóri og Aníta Aradóttir verkefnastjóri.
Þær breytingar hafa einnig orðið á starfsmannahaldi LH að Hjörný Snorradóttir hefur látið af störfum og Ísólfur Líndal Þórisson hefur látið tímabundið af störfum sem aðstoðarlandsliðsþjálfari af persónulegum ástæðum.
lhhestar.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH