Nýr verkefnastjóri Knapamerkja
Þann 1. september lét Helga Thoroddsen af störfum sem kennari við Háskólann á Hólum og sem verkefnisstjóri Knapamerkja. Við starfinu hefur tekið Hlín Jóhannesdóttir en hún útskirfaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum vorið 2013. Síðustu ár hafa Knapamerkin vaxið og dafnað og aldrei fleiri útskrifast með góðum árangri af 5. stigi en vorið 2013. Vonandi verður framhald á.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing