Nýtt fólk á Rauðalæk
Fjölskyldan í reiðtúr við tökur á þýskum barnaþáttum. Ljósmyndir úr einkasafni.
Þau Elín Magnea Björnsdóttir og Axel Örn Ásbergsson hafa síðastliðin fimm ár rekið tamningastöð í Dal, Mosfellsbæ. Þau hafa nú fært sig austur í Rangárvallasýslu að Efri-Rauðalæk í Holtum.
„Við römbuðum í kaffi til Evu [innskot: Evu Dyröy] nánast fyrir slysni og þetta var ákveðið yfir einum kaffibolla, svona að mestu,“ segja þau Elín og Axel. „Okkur líst mjög vel á staðinn og hlökkum til samstarfs með Evu.“
Elín og Axel búa í bústað nálægt Rauðalæk en verða sjálf með 2/3 af hesthúsinu í vetur. Til stendur að hafa um 30 hross í þjálfun, aðallega kynbótahross.
„Við höfum bara verið tvö í frumtamningunum síðastliðin ár og finnst það gott en svo getur verið að við bætum við okkur mannskap þegar líður á veturinn.“

Axel og Dreki frá Kjarri. Ljósmynd: Mystery Horses
Talandi um frumtamningar; hvernig hefur haustið verið hjá þeim skötuhjúum svona í miðjum flutningum með öllu tilheyrandi?
„Haustið hefur verið alls konar. Fyrst voru það flutningar, svo blanda af ýmsu: Tamningar, þjálfun, sala á hrossum og kennsla. Við höfum einnig haft umsjá með atriðum tengdum íslenskum hestum í þremur kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum upp á síðkastið.“
Slík verkefni eru alltaf hjúpuð dulúð í nánast jafn ríkum mæli og efnilegustu trippi hvers hausts. Við fáum þó að heyra af verkefni sem þau tóku þátt í fyrir þýskan barnaþátt sem verður sýndur víða um Evrópu. En hvað með trippin?
„Við erum að taka góða törn í frumtamningum núna og þar eru mörg sniðug trippi, meðal annars undan Safír frá Mosfellsbæ, Apollo frá Haukholtum, Degi frá Hjarðartúni ásamt þeim Hannibal og Sóloni frá Þúfum. Svo er alltaf gaman að sjá fyrstu afkvæmi ungra hesta. Við erum til dæmis með hryssur undan Feyki frá Stóra-Vatnsskarði og Náttfara frá Varmalæk.“

Elín og Lúkas frá Vatni
Það er greinilega nóg um að vera hjá ungu og kraftmiklu fólki. Enn er eitthvað til af góðum söluhrossum og fram undan spennandi vetur. Þau reikna þó ekki með að taka þátt í deildum í vetur, til þess sé hestakosturinn frekar ungur.
„Við verðum aðallega með hross sem stefna á kynbótabrautina. Okkar ræktun er að komast á tamningaraldur og munum við frekar einbeita okkur að þessum ungu hrossum en reyna að ná okkur í keppnishross. Það verður að velja og hafna í þessu.“
Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu, sérstaklega ræktuninni enda alltaf gaman þegar nýir ræktendur stíga inn á sviðið með sínar áherslur.
„Okkur langar til að nýta tækifærið,“ bæta þau við að lokum, „og þakka samstarfsfólki okkar í Dal ásamt öllum þeim viðskiptavinum sem skiptu við okkur síðustu árin.“
Við hjá Eiðfaxa þökkum Elínu og Axel fyrir viðtalið og óskum þeim góðs gengis á nýjum stað.
Rýnihópur um framtíðarsýn Landsmóta