Opið hestaíþróttamót á Sauðárkróki
Bjarni Jónasson og Roði frá Garði.
Opið hestaíþróttamót verður haldið á félagssvæði Léttfeta Sauðárkróki sunnudaginn 10. maí og hefst mótið kl. 14 að er fram kemur í tilkynningu frá hestaíþróttaráði UMSS.
„Keppt verður í T1, V1, F1, T2, T7(hægt tölt og frjálsferð). Athugið að einungis verður riðin forkeppni.
Skráning á netfangið: [email protected] fyrir kl: 21:00 á föstudaginn – 8.maí.
Skráningargjald er kr 2.000,- á grein og greiðist á staðnum.
Við viljum einnig minna á WR-mót í hestaíþróttum sem haldið verður á Hólum í Hjaltadal 22. – 24. maí. Keppt verður í öllum greinum hestaíþrótta.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH