Opið hús í Ölvisholti
Sunnudaginn 29. maí verður opið hús í Ölvisholti í Flóa milli kl. 12-17 í tengslum við sveitahátíðina “Fjör í Flóa”.
Í Ölvisholti má skoða lausagönguhesthús / opið hesthús ásamt sjálfvirku fóðurkerfi fyrir hey og kjarnfóður sem henta jafnt fyrir reiðhesta í lausagöngu og í stíum en ennfremur fyrir útigang.
Hesthúsið hefur verið í notkun í tvö ár.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér aðstæðurnar í Ölvisholti er einnig bent á að hafa samband í síma 892 1340 eða 856 1132 og koma á öðrum tímum ef það hentar betur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH