Opið ísmót Riddara Norðursins
Opna Ísmót Riddara Norðursins verður haldið á Tjarnatjörninni við reiðhöllina Svaðastaði, næstkomandi laugardag 14. febrúar.
„Einungis verður keppt í tölti, en keppt verður í þremur flokkum, 16 ára og yngri, minna vanir og meira vanir. Skráning fer fram í Tjarnabæ frá kl 11:30 til 12:30 og kostar skráningin 1000 kr. Mótið hefst kl 13:00. Opið mót þýðir að allir mega taka þátt.
Kaffisala verður í Tjarnabæ og verðlaunaafhendingar munu fara fram þar að móti loknu.
Ríða skal eina ferð á hægu tölti, næst skal sýna hraðabreytingar á tölti, þar á eftir greitt tölt og seinasta ferðin er frjálst val. Veitingastaðurinn Ólafshús mun gefa öll verðlaun í öllum flokkum.
Má þess geta að Riddurum Norðursins þykir gaman að halda mót, hvort sem sé fyrir hesta eða menn, og vonast þeir því til að sjá sem flesta á ísnum. Mótið hefur jafnan verið vel sótt af allskonar gæðingum, og allar líkur á að svo verði einnig þetta árið.
Nú er spáð góðu magni af frosti næstu daga og hægviðri á laugardaginn, þá er um að gera að dusta rykið af sér og mæta á Tjarnartjörnina með gæðinginn sinn,“ segir í tilkynningu frá Riddurum Norðursins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH