Opið íþróttamót Mána
“Skráningu lýkur á mánudaginn!
Hestamannafélagið Máni heldur Opið íþróttamót Mána sem fer fram helgina 19.-21.apríl nk. Þetta mót hefur fest sig í sessi undanfarin ár sem fyrsta stóra íþróttamótið á suðvesturhorninu.
Boðið verður uppá eftirfarandi greinar:
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1-Tölt T1-Tölt T4-Fimmgangur F1 -Gæðingaskeið
1.flokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Tölt T7-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið-100m skeið
2.flokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Tölt T7-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
Barnaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3
Pollaflokkar: Ríðandi og teymdir (þátttökuverðlaun, ekki raðað í sæti)
ATH að T4 er skráð sem T2 í skráningarkerfinu
Skráning er hafin á eftirfarandi vefslóð: http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Skráningu lýkur á miðnætti mánudaginn 15.apríl.
Passa þarf að velja skráningu í efstu línu, svo mót í næstu línu, velja svo Mána sem mótshaldara og fylla svo inní stjörnumerkta reiti. Neðst er hægt að velja um atburð og þá er valið Opið íþróttamót. Þá birtast, fyrir neðan, þær greinar sem í boði eru á mótinu. Keppandi velur sér grein og uppá hvora hönd skal riðið. Þegar keppandi hefur valið það sem við á og fyllt út alla stjörnumerkta reiti er pöntunin sett í körfu sem er hnappur neðst á síðunni. Hægt er að bæta við fleiri skráningum og setja í körfuna. Þegar keppandi er búinn að skrá þá er farið í vörukörfuna efst í hægra horninu og gengið frá greiðslu þar, hægt er að velja um kortagreiðslu eða millifærslu. Ath að ef greitt er með millifærslu þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á: [email protected] Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið.
Í boði er líka að skrá sig í gegnum [email protected],“ segir í tilkynningu frá Mána
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH