Opið mót á Sauðárkróki á laugardag
Opið mót á vegum Riddara Norðursins verður haldið á Fluguskeiði Sauðárkróki laugardaginn 20. ágúst.
„Keppt verður í Tölti og Skeiði.
Töltkeppnin fer fram á beinu brautinni, 4 ferðir. 1 ferð hægt tölt, 1 ferð hraðabreytingar, 1 ferð greitt tölt og seinasta ferðin er frjáls ferð.
Skeiðað verður út úr startboxum, 150 metra.
Skráning verður við brautarenda á laugardaginn milli klukkan 12 og 13.
Klukkan 14.00 Tölt
Klukkan 16.00 Skeið
Klukkan 17.00 Tölt úrslit, “ segir í tilkynningu frá félaginu.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV