Opið skeiðmót á Sauðárkróki
Föstudaginn 23. september kl.16 heldur Skeiðfélagið Kjarval opið skeiðmót á svæði hestamannafélags Léttfeta, Fluguskeiði á Sauðárkróki.
Keppt verður í 150 og 250 metra skeiði úr básum með rafrænum tímatökubúnaði. Peningaverðlaun eru á fljótustu hestana og öðlast þeir rétt til þáttöku á skeiðsýningu í reiðhöllini Svaðastöðum um kvöldið. Tekið er á móti skráningum á netfangið [email protected]. Skráningu lýkur 21. september klukkan 22:00. Skráningargjald er krónur 2.000 á fyrstu skráningu en 1.000 kr. eftir það. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu knapa og IS númer hests og grein. Leggja skal skráningargjöld inn á reikning 0161-26-5709 kt. 570909-1340.
Nú þegar hafa nokkrir mjög fljótir hestar boðað komu sína.
Sölusýning verður strax eftir skeiðkappreiðarnar á Fluguskeiðsvelli.
Skeiðfélagið Kjarval.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH