Opið töltmót hjá Sóta
Hestamannafélagið Sóti heldur opið töltmót (T1) þriðjudaginn 14. júní kl. 18.
“Mótið verður haldið á velli félagsins við Breiðumýri á Álftanesi, en völlurinn hefur verið lofaður af atvinnumönnum og verður í toppstandi.
Keppt verður í tveimur flokkum ef næg þátttaka fæst
a) Meistaraflokki b) 1.flokki Opið verður fyrir skráningar frá 6.- 9. júní frá kl. 20:00 – 22:00 í síma 618-0266. Skráningargjald er 3.500.- krónur á hest og er skráning gild þegar búið er að greiða með greiðslukorti eða innleggi inná bankareikning. Verðlaun fyrir fyrsta sætið í báðum flokkum er hestamynd eftir Helmu Þorsteinsdóttur. Nú er lag að anda að sér fersku sjávarloftinu á Álftanesi, prófa frábæran völl og ná sér í flottar einkunnir. Svo er aldrei að vita hver mun afhenda verðlaunin!
Sjáumst á Álftanesi 14 júní,” segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Sóta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH