Opið WR mót að Mánagrund
Hestamannafélagið Máni stendur fyrir opnu WorldRanking móti helgina 20.-22. apríl nk. Skráningar fara fram á fimmtudag:
„Skráning í Opna íþróttamót Mána (World Ranking) sem haldið verður dagana 20.-22. apríl verður fimmtudaginn 12 apríl í Mánahöllinni og í síma milli kl. 20 og 22. Einnig verður tekið á móti skráningum á netfangið [email protected].(Netskráningu lýkur fimmtudaginn 12. apríl kl. 24.) Skráningargjald er kr 3.500 á grein nema í pollaflokka kr 1.500. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og flokkum. ATH einnig verða pollaflokkar í boði (Ekki raðað í sæti).
Einnig viljum við vekja sérstaka athygli á því að í boði verða einnig T5 og T7
(T5 -Verkefni: Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd. Hraðabreytingar, aukinn hraði á langhliðum, hægt tölt á skammhliðum.)
(T7-Verkefni: Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd. Frjáls ferð á tölt)
Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, IS númer hests, keppnisgrein, flokkur og upp á hvora hönd er riðið í hringvallagreinunum. Þeir sem hringja eða senda póst þurfa að láta kortanúmer og gildistíma korts fylgja.
Símar til að hringja í á fimmtudagskvöldið eru:
695-0049 vodafone
866-0054 síminn
861-2030 Nova
869-3530 síminn
861-9641 síminn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH