Orri frá Þúfu í Hestablaðinu
Orri frá Þúfu er aðalleikari í Hestablaðinu, sem kemur út á morgun, fimmtudaginn 17. mars. Ítarleg úttekt er gerð á sögu og áhrifum Orra, sem er 25 ára um þessar mundir. Allt blaðið er lagt undir þá umfjöllun.
Rifjað er upp það helsta sem Orra tengist í sögu hrossaræktarinnar. Vitnað er í eldri skrif um hestinn og helstu samferðamenn hestsins teknir tali. Við sögu koma Indriði Ólafsson, ræktandi Orra, Bragi Andrésson, sem á stærstan þátt í að Orri var „uppgötvaður“, Rúna Einarsdóttir, Gunnar Arnarson, Sigurður Sæmundsson, Bjarni Þorkelsson, Þorvaldur Sveinsson á Kjartansstöðum og Andrés Kristinsson á Kvíkabekk. Ýmsar tölfræðilegar upplýsingar eru um áhrif hans í ræktuninni. Auk þess sem það er prýtt fjölda mynda.
Orri frá Þúfu í Hesablaðinu. Blað sem enginn áhugamaður um hrossarækt og hestamennsku má láta fram hjá sér fara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH